„Miklu valdi fylgir mikil ábyrgð“

Stundin - Glitnisskjöld - lögbann
Stundin - Glitnisskjöld - lögbann mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjórn Blaðamannafélags Íslands fordæmir lögbann það sem sýslumaðurinn í Reykjavík hefur lagt við frekari birtingu frétta byggðum á gögnum úr Glitni banka, sem Stundin og Reykjavík Media hafa undir höndum og krefst þess að lögbannið verði þegar látið niður falla, enda engir þeir hagsmunir í húfi sem réttlæta slíkar aðgerðir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Segir þar að tjáningarfrelsið sé grundvöllur lýðræðis og frjálsir fjölmiðlar hornsteinar tjáningarfrelsisins. „.Lýðræði fæst ekki staðist án þeirra,“ segir í tilkynningunni.

Gagnrýnir félagið stórlega ákvörðun sýslumannsins í Reykjavík. „Miklu valdi fylgir mikil ábyrgð,“ segir þar.

„Það er ávallt stóralvarlegt mál að leggja hömlur á tjáningarfrelsi í lýðfrjálsum löndum, en það er sérdeilis alvarlegt þegar það er gert í aðdraganda almennra þingkosninga.  Í því ljósi er ákvörðun sýslumannsins í Reykjavík fullkomlega óskiljanleg.  Það bætir svo gráu ofan á svart að gögnin höfðu verið til umfjöllunar í fjölmiðlum í nærfellt tvær vikur áður en lögbannið er sett, þannig að það bar enga nauðsyn til þess að grípa til svo afdrifaríkra aðgerða gagnvart tjáningarfrelsinu í landinu,“ segir í tilkynningunni.

Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands
Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands

Vísað er til þess að vantraust hafi verið meinsemd í íslensku samfélagi í um áratug og það sé ekki að ástæðulausu. „Í aðdraganda og eftirmálum hrunsins upplifði íslensk þjóð baneitraða blöndu viðskipta og stjórnmála og þess græðgishugarfars sem því var samfara, auk þess sem hörmungar voru kallaðar yfir fjölda íslenskra fjölskyldna í formi atvinnu- og eignamissis.  Þetta samfélag þreifst í skjóli lyga og leyndarhyggju og stjórnkerfis sem ekki taldi sig skulda íslenskum almenningi skýringar á ákvörðunum sínum.  Jafnframt reyndist íslenskt dómskerfi ekki hlutverki sínu vaxið, því miður.  Ítrekað takmörkuðu dómar tjáningarfrelsi og umfjallanir blaðamanna þannig að þeir urðu að leita réttar síns til Mannréttindadómstóls Evrópu.  Nánast undantekningalaust hafa þeir haft erindi sem erfiði og dómum Hæstaréttar Íslands verið snúið við. Það segir sína sögu.“

Segir í tilkynningunni að það sé þyngra en tárum taki að tjáningarfrelsið og starfsemi fjölmiðla skuli nú enn á ný ekki fá að njóta vafans og vantraustið í íslensku samfélagi þar með nært. „Stjórn Blaðamannafélags Íslands skorar á nýtt Alþingi að styrkja innviði lýðræðiskerfisins og leggja sitt af mörkum til þess að stórefla faglega umræðu í íslensku samfélagi meðal annars með því að styrkja rannsóknarblaðamennsku.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert