Áforma byggingu nýs Sjálfsbjargarhúss

Frá Sjálfsbjargarhúsinu við Hátún.
Frá Sjálfsbjargarhúsinu við Hátún. Ljósmynd/Jim Smart

Sjálfsbjörg og Reykjavíkurborg undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um að vinna sameiginlega að þróun og skipulagningu á lóð Sjálfsbjargar við Hátún 12. Gerð deiliskipulags á reit Sjálfsbjargar við Hátún 12 verður grundvöllur að framtíðaruppbyggingu samtakanna á lóðinni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sjálfsbjörg. Gert er ráð fyrir að Kanon arkitektar annist gerð deiliskipulagsins í samstarfi við Sjálfsbjörg og Reykjavíkurborg. 

„Ég fagna frumkvæði og framtíðarsýn Sjálfsbjargar. Það er sameiginlegt hagsmunamál borgarinnar og Sjálfsbjargar að fjölga vel staðsettum íbúðum fyrir fatlað fólk og fjölga almennum íbúðum einnig á þessum frábæra stað. Við fögnum líka hugmyndum um nýtt Sjálfsbjargarhús og öfluga endurhæfingu í hjarta borgarinnar,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri.

Sjálfsbjörg áformar byggingu nýs Sjálfsbjargarhúss á lóðinni, auk 40 nýrra íbúða í tengslum við þá starfsemi. Meginástæða þess er sú að núverandi húsnæði mætir ekki lengur þörfum Sjálfsbjargar og þeirrar þjónustu sem Sjálfsbjörg veitir hreyfihömluðum, hvort sem um er að ræða búsetu eða dagþjónustu. Auk byggingar yfir starfsemi Sjálfsbjargar má gera ráð fyrir að á lóðinni megi byggja fjölda lítilla íbúða sem  gert er ráð fyrir að verði leigðar eða seldar á almennum markaði.

Gert er ráð fyrir að Sjálfsbjargarheimilið muni í framtíðinni leggja enn frekari áherslu á endurhæfingu og fjölbreytt búsetu- og þjónustuúrræði auk þess að efla þjónustu við stóran hóp hreyfihamlaðra í landinu. „Með þessu samkomulagi eru Reykjavíkurborg og Sjálfsbjörg að hefja samstarf um skipulagsvinnu þar sem lóð Sjálfsbjargar verður nýtt mun betur til framtíðaruppbyggingar þjónustu við hreyfihamlað fólk í landinu“, segir Þorkell Sigurlaugsson, ráðgjafi Sjálfsbjargar og verkefnastjóri þessa verkefnis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert