Eldur kom upp í bakarofni í fjölbýlishúsi á Grettisgötunni seint í gærkvöldi. Um var að ræða Airbnb-íbúð og voru erlendir ferðamenn í henni þegar slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kom á vettvang.
Að sögn slökkviliðsins urðu engar skemmdir á íbúðinni og reykur var lítill.
Tilkynning um eldinn barst klukkan 21.30.