Basic Events, fyrirtækið sem á skemmtihlaupin Color Run og Gung-Ho á Íslandi, ætlar að halda á annan tug hlaupa í Skandinavíu á næsta ári, en fyrirtækið hefur eignast réttinn fyrir öll Norðurlönd.
Áætlanir gera ráð fyrir að um 70 þúsund manns taki þátt í hlaupunum, að því er fram kemur í umfjöllun um útrás þessa í ViðskiptaMogganum í dag.
„Við búum að reynslunni sem við höfum öðlast hér heima með Color Run síðastliðin þrjú ár og Gung-Ho nú í sumar,“ segir Davíð Lúther Sigurðarson.