Ísland og Írland leiða samstarf um afvopnunarmál

Sturla Sigurjónsson ráðuneytisstjóri og Simon Coveney, utanríkisráðherra Írlands.
Sturla Sigurjónsson ráðuneytisstjóri og Simon Coveney, utanríkisráðherra Írlands. Utanríkisráðuneytið

Ísland og Írland munu frá 2017 til 2018 gegna saman formennsku í eftirlitskerfi með flugskeytatækni sem snýst um að takmarka útbreiðslu á eldflaugatækni fyrir burðarkerfi vopna, þar með talið gereyðingarvopna.

Samstarfsvettvangurinn er mikilvægur liður í vinnu að afvopnunarmálum á heimsvísu og skiptast þátttökuríki á um formennskuna. Þetta kemur fram í frétt á vef utanríkisráðuneytisins

Í fréttinni er haft eftir Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra að afvopnun og eftirlit með flugskeytatækni sé grundvöllur þess að ná fram friðsamlegri lausn deilumála og tryggja öryggi eins og viðburðir liðinna mánaða bera vitni um. 

„Okkur er sýnt mikið traust með því að biðja okkur að taka að okkur formennskuna með Írum. Þetta er ábyrgðarstaða á alþjóðavettvangi og sýnilegt framlag í afvopnunarmálum og eftirliti sem fellur vel að utanríkis- og þjóðaröryggisstefnu Íslands. Þá skapast með þessu nýir möguleikar á samstarfi með vina- og frændþjóð okkar, Írum,“ segir Guðlaugur Þór. 

Samstarfsvettvangurinn er óformlegt samstarf 35 ríkja sem var stofnað árið 1987 og vinnur gegn útbreiðslu ómannaðra burðarkerfa fyrir gjöreyðingarvopn. Meðal aðila að samstarfinu eru Bandaríkin og Rússland en Ísland gerðist aðili að eftirlitskerfinu árið 1993. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert