Hæstiréttur sýknaði í dag íslenska ríkið af kröfum Skotveiðifélags Reykjavíkur og nágrennis. Skotveiðifélagið hafði farið fram á að ríkinu yrði gert að greiða sér skaðabætur vegna málskostnaðar sem félagið hefði sem orðið fyrir er það sótti mál gegn ríkinu vegna starfsleyfis skotvallar á Álfsnesi, sem umhverfisráðuneytið felldi úr gildi árið 2010.
Forsaga málsins er sú að 2004 gerðu Reykjavíkurborg og Skotveiðifélagið með sér samning um afnot af landspildu á Álfsnesi til skotæfinga. Skotveiðifélagið fékk útgefið starfsleyfi til að starfrækja skotæfingasvæði á spildunni sama ár og var með starfsemi. Starfsleyfið gilti til átta ára og því þurfti félagið að sækja um endurnýjun á því til Heilbrigðisnefndar Reykjavíkurborgar.
Umsókn félagsins um endurnýjun var samþykkt 2009 og fékk félagið þá útgefið starfsleyfi til 12 ára.
Íbúasamtök Kjalarness og eigendur og ábúendur á jörðinni Skriðu á Álfsnesi kærðu hins vegar ákvarðanir heilbrigðisnefndar um endurnýjun starfsleyfanna til umhverfisráðuneytisins og var í kærunum vísað til þess að deiliskipulag skorti á Álfsnesi til að heimilt væri að nýta umrætt landsvæði undir skotvelli.
Umhverfisráðuneytið felldi í kjölfarið ákvörðun Heilbrigðisnefndar Reykjavíkur úr gildi og felldi Hæstiréttur síðan úrskurð umhverfisráðuneytisins úr gildi 2014. Hæstiréttur úrskurðaði þó að hver aðili yrði látinn bera sinn kostnað af málinu í héraði og fyrir Hæstarétti. Þessu vildi skotveiðifélagið hins vegar ekki una og krafðist skaðabóta frá ríkinu vegna málskostnaðarins.
Hæstiréttur taldi hins vegar í dómi sínum nú að Skotveiðifélagið hefði ekki sýnt fram á að starfsmenn ráðuneytisins hefðu á grundvelli sakar valdið sér tjóni af ásetningi eða gáleysi þannig að félagið gæti sótt um bætur til ríkisins vegna kostnaðar af rekstri málsins. Væri skilyrðinu um saknæmi því ekki fullnægt og ríkið þar af leiðandi sýknað af kröfum Skotveiðifélagsins.
Var Skotveiðifélaginu því gert að greiða ríkinu samtals 1.000.000 krónur í málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti.