Þjóðskrá Íslands fær 34.000 til 36.000 lögheimilistilkynningar inn á sitt borð ár hvert, en rangar skráningar eru áætlaðar um 1-2% allra flutninga.
Miklar umræður hafa nú skapast í hópi á Facebook þar sem fólk deilir sögum af reynslu sinni og annarra af röngum lögheimilisskráningum.
Segjast sumir hafa fengið heimsókn úr undirheimum vegna rangra skráninga, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.