Blóðbankinn auglýsir í dag eftir því að hann vanti nauðsynlega að fá inn tólf O mínus blóðgjafa í dag, en vöntun er á slíku blóði. Aðeins einn í þeim blóðflokki hefur komið í dag.
Samkvæmt tilkynningu frá bankanum á Facebook eru 0 mínus blóðgjafar hvattir til að mæta í blóðgjöf í dag, en opið er á Snorrabraut til 19:00 og á Akureyri til 15:00.
Á heimasíðu blóðbankans má sjá að einnig er vöntun á blóðflokkum O plús, A mínus, A plús og AB mínus.