Blekkingaleiknum vonandi lokið

Austurengjar Hverir suður af Kleifarvatni. Sveifluháls liggur til norðausturs. áttúruverndarsamtök …
Austurengjar Hverir suður af Kleifarvatni. Sveifluháls liggur til norðausturs. áttúruverndarsamtök Íslands segja að legið hafi fyrir í tvö ár að Ísland geti ekki staðið við skuldbindingar sínar á öðru skuldbindingartímabili Kyoto-bókunarinnar. mbl.is/Rax

Náttúruverndarsamtök Íslands segja að legið hafi fyrir í tvö ár að Ísland geti ekki staðið við skuldbindingar sínar á öðru skuldbindingartímabili Kyoto-bókunarinnar. Ákveðið hafi hins vegar verið að þegja um stöðuna í aðdraganda Parísarráðstefnunnar í desember 2015 og aftur fyrir kosningarnar í fyrra.

Umhverfisstofnun og umhverfisráðherra upplýstu á umhverfisþingi í morgun, að Ísland muni tæpast geta staðið við skuldbindingar sínar fyrir tímabilið 2013-2020 og að Íslandi muni einnig reynast erfitt að standast í samvinnu Evrópusambandið við skuldbindingar sínar gagnvart Parísarsamkomulaginu fyrir tímabilið 2021 - 2030. 

„Vonandi lýkur þar með blekkingarleik stjórnvalda og stóriðju- og orkufyrirtækja, sem til skamms tíma hafa haldið því að þjóðinni að Íslendingar séu heimsmeistarar í hreinni orku, öðrum þjóðum mikil fyrirmynd í loftslagsmálum; að helsta framlag Íslands til loftslagsmála felist í að selja orkufrekum iðnaði hreina orku,“ segir í fréttatilkynningu Náttúruverndarsamtakanna.

Einnig hafi komið fram  á þinginu í morgun að enn liggi ekki fyrir nein aðgerðaáætlun um það hvernig skuli draga úr losun gróðurhúsalofttegunda hér á landi. Þetta sé fimm árum eftir að samkomulag náðist í Doha um Kyoto II og fjórum árum eftir að skuldbindingartímabilið hófst.

Náttúruverndarsamtökin taki undir orð Kristínar Lindu Árnadóttur um að það sé nr. 1, 2 og 3 að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Það verði enda að teljast „harla ólíklegt að binding kolefnis með breyttri landnotkun (skógrækt, landgræðslu og/eða endurheimt votlendis) muni teljast með í sameiginlegri skuldbindingu aðildarríkja Evrópusambandsins, Íslands og Noregs.

Samningaviðræður við ESB um framlag Íslands eru ekki hafnar og strandar þar á kröfu Íslands um að fá að telja fram bindingu kolefnis með breyttri landnotkun. Af ríkjum ESB fékk Írland mest svigrúm til að nýta breytta landnotkun í sameiginlegu markmiði Evrópuríkja um 40% samdrátt, eða 5,6%. Var þá miðað við að 30% losunar gróðurhúsalofttegunda þar í landi eru frá landbúnaði. Hér á landi er hlutfallið 15% sem styður þá niðurstöðu Kristínar Lindu að mikilvægast sé að draga úr losun frá landbúnaði, sjávarútvegi, iðnaði, samgöngum og úrgangi,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert