Óánægðari með ferðina til Íslands

Ferðamenn í Hljómskálagarðinum.
Ferðamenn í Hljómskálagarðinum. mbl.is/Ómar Óskarsson

Ferðamenn sem sækja Ísland heim eru óánægðari með ferðina í sumar miðað við sumarið á undan. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Gallup.  

Þar segir að Ferðamannapúls Gallup hafi lækkað marktækt á milli sumra en hann mælir heildaránægju og heildarupplifun ferðamanna á heimsókn þeirra til Íslands.

Ferðamannapúlsinn var 2,5 stigum lægri fyrir sumarið 2017 heldur en sumarið 2016. Ferðamannapúlsinn hefur til ágúst 2017 mælst lægri í öllum mánuðum ársins 2017 miðað við sömu mánuði síðasta árs. Í ágúst var munurinn ómarktækur og mældist töluvert minni en á fyrri mánuðum ársins þar sem munurinn var í öllum tilfellum yfir 2 stig.

Rússneskir ferðamenn voru ánægðastir með heimsókn sína til landsins í sumar (87 stig), en þeir mælast nokkuð hærri en ítalskir ferðamenn (84,2 stig), sem fylgja næst á eftir.

Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. mbl.is/Ómar Óskarsson

Lægstur meðal Norðmanna

Ferðamannapúlsinn mældist lægstur meðal Norðmanna (79,8 stig) og Breta (80,2 stig). Þetta eru jafnframt þeir ferðamannahópar sem hafa lækkað mest frá sama tíma í fyrra.

Ferðamannapúlsinn lækkaði um 6,5 stig meðal norskra ferðamanna milli sumra og lækkaði um meira en 4 stig meðal breskra, pólskra og sænskra ferðamanna.

Óánægja með verðlag 

Þegar horft er í undirþætti Ferðamannapúlsins stafar lækkunin milli sumra fyrst og fremst af minnkandi ánægju með verðlag, sem mældist 4,5 stigum minni heldur en sumarið 2016.

Aðrir undirþættir Ferðamannapúlsins lækkuðu einnig frá sumrinu 2016 til sumarsins 2017.

Líkur á að mæla með Íslandi sem ferðamannastað minnkuðu um 2,7 stig en hvað varðar heildaránægju ferðamanna, mati þeirra á gestrisni Íslendinga og að hversu miklu leyti væntingar ferðamanna fyrir ferðina voru uppfylltar var lækkunin undir 2 stigum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert