Umhverfisþing hófst í Hörpu í morgun með ávarpi Bjartar Ólafsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra. Það er haldið samkvæmt ákvæðum náttúruverndarlaga og að þessu sinni verða loftslagsmál meginefni þingsins.
Á þinginu verða flutt erindi um hinar margvíslegu hliðar loftslagsbreytinga, áhrif þeirra á Ísland og hvernig best verður tekist á við þær breytingar sem fylgja hlýnun jarðar. Þinginu lýkur með pallborðsumræðum.
Heiðursgestur þingsins verður Monica Araya frá Costa Rica. Hún er doktor í umhverfisfræði og frumkvöðull í heimalandi sínu í öllu er varðar sjálfbærni, þróun hreinnar tækni og vistvænna orkugjafa. Erindi hennar mun fjalla um möguleika lítilla ríkja á að vera í fararbroddi í loftslagsmálum, að því er kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.
Þingið er öllum opið meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending frá umhverfisþinginu: