Kona var handtekin á höfuðborgarsvæðinu rétt fyrir klukkan ellefu í gærkvöld vegna gruns um heimilisofbeldi. Hún var vistuð í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.
Þá var karlmaður handtekinn í kjallara fjölbýlishúss í borginni rétt eftir miðnætti í gærkvöldi. Maðurinn var ofurölvi og ekki var hægt að ræða við hann sökum ástands. Maðurinn er vistaður í fangaklefa.
Rétt rúmlega tíu í gærkvöldi var tilkynnt um hóp hóp unglinga að skemma umferðarskilti við Árbæjarskóla. Fór lögregla á staðinn og hafði afskipti af ungmennunum.