Miklum verðmætum stolið úr ferðatösku

Löng bið var eftir töskunum á áfangastað.
Löng bið var eftir töskunum á áfangastað. mbl.is/Ómar Óskarsson

Lögreglunni á Suðurnesjum barst í vikunni tilkynning um stórþjófnað úr ferðatösku ferðalangs. Þjófnaðurinn  sér stað þegar viðkomandi var á leið til Bandaríkjanna, en verðmæti þess sem stolið var nam hátt á þriðja hundrað þúsund krónum.

Nokkuð bið hafði orðið á því að hópurinn sem viðkomandi hafði ferðast með fengi farangur sinn þegar komið var á áfangastað. Við komuna á hótel, þegar tekið var upp úr ferðatöskum, kom í ljós að farið hafði verið í þær sem voru ólæstar og ýmsu stolið úr þeim. Ofangreindur ferðamaður saknaði einkum verðmætra skartgripa en einnig snyrtivara o.fl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert