Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um hópslagsmál fyrir utan bar í Kópavogi á áttunda tímanum í gærkvöldi.
Voru slagsmálin yfirstaðin þegar lögreglan kom á staðinn og vildu einstaklingarnir sem í þeim tóku þátt, bæði íslenskir og erlendir, engin eftirmál af látunum að því er segir í dagbók lögreglu.
Voru allir látnir lausir að lokinni upplýsingatöku.