Stefna í loftslagsmálum hefur áhrif á flokkaval

Kváðust tæplega 70% aðspurðra hafa miklar áhyggjur af loftslagsbreytingum.
Kváðust tæplega 70% aðspurðra hafa miklar áhyggjur af loftslagsbreytingum. mbl.is/Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Stefna stjórnmálaflokka í náttúruvernd og loftslagsmálum skiptir miklu við val á flokki samkvæmt nýrri könnun sem Gallup vann fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands.

Töldu tveir þriðju aðspurðra stefnu flokkanna varðandi þessa tvo málaflokka skipta miklu máli, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Náttúruverndarsamtökunum.


Spurt var hvort stefna stjórnmálaflokkana varðandi náttúruvernd og loftslagsmál skipti aðspurða miklu eða litlu máli við ákvörðun á hvaða stjórnmálaflokk viðkomandi hyggst kjósa í komandi alþingiskosningum. 

Einnig var spurt: „Hversu miklar eða litlar áhyggjur hefur þú af loftslagsbreytingum í heiminum?“

Kváðust tæplega 70% aðspurðra hafa miklar áhyggjur af loftslagsbreytingum, 21,6% sögðust hafa hvorki miklar né litlar áhyggjur og 9,1% sögðust hafa litlar áhyggjur.
 
Marktækur munur var á svörum eftir kyni, búsetu, menntun, stjórnmálaskoðunum og aldri.

Benda Náttúruverndarsamtökin á að losun gróðurhúsalofttegunda hafi aukist hér á landi um 26% frá árinu 1990, en minnkað um 26% í öðrum Evrópuríkjum. „Fátt bendir til að Ísland muni standa við skuldbindingar sínar samkvæmt Kyoto-bókuninni á tímabilinu 2013 - 2020 og enn - árið 2017 - hefur stjórnvöldum ekki lánast að smíða aðgerðaáætlun um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.

Börn sem fæðast í dag verða á fermingaraldri þegar fyrsta skuldbindingartímabili Parísarsamkomulagsins lýkur,“ að því er segir í tilkynningunni. Þá ógni súrnun sjávar nytjastofnum á Íslandsmiðum.

„Afstaða stjórnvalda hefur hingað til einkennst af ótrúlegu sinnuleysi. Náttúruverndarsamtök Íslands skora á stjórnamálaflokkana að gera grein fyrir stefnu sinni í loftslagsmálum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert