„Algjört fyrsta skref“

Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstri grænna, segist ætla að læra …
Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstri grænna, segist ætla að læra af atvikinu. mbl.is / Ómar Óskarsson

„Það er auðvitað gott að hann hafi hringt og beðist afsökunar. Það er algjört fyrsta skref,“ segir Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstri grænna, í samtali við mbl.is. Hún staðfestir að Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hafi hringt og beðið hana afsökunar, eins og hann greindi frá í pistli á Facebook nú fyrir skömmu.

Brynjar spurði Steinunni Þóru, á fundi Siðmenntar í gærkvöldi, hvort hann mætti kyssa hana. Þá sagðist hann vera hrifinn af henni. Fundurinn var sýndur í beinni útsendingu á Facebook en Steinunn Þóra sagði í morgun að henni hefði þótt framferði Brynjars óviðeigandi og að hann hefði farið yfir strikið. Á fundinum var verið að ræða pólitík.

Spurð hvernig hún hafi tekið afsökunarbeiðninni segist Steinunn Þóra taka mark á því þegar fólk hringi og biðjist afsökunar: „En ég benti honum á að þarna hefði hann verið að tala inn í þessa kynjuðu orðræðu sem við höfum verið að takast á við í samfélaginu,“ segir hún.

Steinunn Þóra segir að þau geti vonandi bæði lært af þessari uppákomu. „Það sem ég get lært er að svara fyrir mig strax,“ segir hún við mbl.is.

Brynjar Níelsson baðst í dag afsökunar.
Brynjar Níelsson baðst í dag afsökunar. mbl.is / Kristinn Ingvarsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert