Leita vitna að árekstri

Frá vettvangi í morgun.
Frá vettvangi í morgun. Ljósmynd Árekstur.is

Árekstur.is óskar eftir vitnum að hörðum árekstri sem varð rétt fyrir klukkan 09:00 á Reykjanesbraut í Hafnarfirði.

Sérstaklega er leitað að litlum hvítum sendiferðabíl sem ók þar um á þessum tíma, segir í tilkynningu frá Árekstur.is. Vitni eru beðin um að hafa samband við Árekstur.is í síma 578-9090 eða með tölvupósti á arekstur@arekstur.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert