Árétting vegna gæludýra á veitingastöðum

Reglugerðin tekur ekki gildi fyrr en hún hefur verið birt …
Reglugerðin tekur ekki gildi fyrr en hún hefur verið birt í Stjórnartíðindum. mbl.is/Þórður

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vill árétta í tilefni frétta um að leyfa gæludýr á veitingastöðum, að breyting á reglugerð um hollustuhætti varðandi gæludýr á veitingastöðum tekur ekki gildi fyrr en reglugerðin hefur verið birt í Stjórnartíðindum.

Í tilkynningu kemur fram að þeir rekstraraðilar sem ætla að leyfa hunda og ketti eiga að tilkynna það fyrst til Heilbrigðiseftirlitsins. 

Veitingastaðirnir þurfa að uppfylla kröfur sem fram koma í reglugerðinni varðandi aðstöðu og kröfur í matvælalöggjöf þannig að hægt sé að meta hvort hundar og kettir megi fara inn í veitingasali viðkomandi staða, að sögn Heilbrigðiseftirlitins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert