40 þúsund manns án rafmagns í gær

Björgunarsveitir höfðu í nógu að snúast í gær.
Björgunarsveitir höfðu í nógu að snúast í gær. mbl.is/Kristinn Magnússon

Yfir 40 þúsund manns voru án rafmagns í gærkvöldi á Reykjanesi, í Hafnarfirði, Garðabæ, Vestmannaeyjum og Vík í Mýrdal, en tvær stórar truflanir urðu í óveðrinu sem gekk yfir. Eldingu laust niður í báðum tilfellum.

Um klukkan níu í gærkvöldi sló eldingu niður í Suðurnesjalínu 1 og rafmagn fór af öllum Reykjanesskaganum með tilheyrandi óþægindum fyrir íbúa og fyrirtæki. Meðal annars var ekki hægt að afhenda rafmagn til Keflavíkurflugvallar og virkjanir á Reykjanesi leystu út í kjölfarið sem leiddi til algjörs rafmagnsleysis á svæðinu. 
Strax var farið í að koma rafmagni á aftur, að segir í tilkynningu frá Landsneti, og var rafmagn komið aftur á stóran hluta svæðisins um það bil klukkutíma síðar.

veðurofsinn í gær var svo mikill að varla var stætt …
veðurofsinn í gær var svo mikill að varla var stætt utandyra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Vegna bilunar í aflrofa fyrir Suðurnesjalínu 1 stóð rafmagnsleysið lengur en ella. Erfitt hefur reynst að sinna viðhaldi á rofanum vegna mikilvægis línunnar en ekki hefur verið hægt að taka línuna út þar sem Suðurnesjalína 1 er eina línan sem tengir Suðurnes við meginflutningskerfið.

Á sama tíma fór út spennir HS veitna í tengivirkinu við Öldugötu í Hafnarfirði og urðu notendur í Hafnarfirði og Garðabæ rafmangslausir í um hálftíma. Á þessari stundu liggur orsökin ekki fyrir.

Rétt fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi varð svo Rimakotslína 1 fyrir eldingu og við það urðu Vík í Mýrdal, nærsveitir og Vestmannaeyjar rafmagnslausar. Flokkur frá Landsneti fór meðfram línunni til að kanna skemmdir og hvort hætta stafaði af línunni þar sem þjóðvegurinn liggur á nokkrum stöðum undir línunni. Rafmagn var komið á um miðnætti.

mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert