Fjölskyldan sem lést var pólsk og búsett í Hrísey

Fólkið sem lést er bifreið þess lenti í sjónum við höfnina á Árskógssandi sl. föstudag var fjölskylda frá Póllandi, búsett í Hrísey til nokkurra ára. Um var að ræða sambýlisfólk, 36 og 32 ára, og fimm ára dóttur þeirra.

Að ósk aðstandenda verða nöfn þeirra ekki gefin upp eða nánari upplýsingar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert