Krapi á Holtavörðuheiði

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Árni Sæberg

Vegir á Suðurlandi eru að mestu greiðfærir en krapi er á Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði en unnið að hreinsun. Á Vesturlandi er víða greiðfært en þó eru hálkublettir á nokkrum leiðum og krapi milli Grundarfjarðar og Ólafsvíkur. Snjóþekja er á Bröttubrekku og krapi á Holtavörðuheiði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Krapi, hálka eða hálkublettir eru víða á vegum á Vestfjörðum en flughált í utanverðu Ísafjarðardjúpi og á Steingrímsfjarðarheiði. Ófært er yfir Hrafnseyrarheiði.

Hálkublettir eru víða á Norðurlandi vestra og hálka á Öxnadalsheiði. Á Norðausturlandi er krapi, hálka eða hálkublettir en flughált á Tjörnesi. Ófært er í Hófaskarði og óveður er á Melrakkasléttu, Langanesi og á Sandvíkurheiði.

Á Austurlandi er krapi á Héraði  og Fagradal en þæfingsfærð á Fjarðarheiði og Breiðdalsheiði. Snjóþekja og skafrenningur er á Oddsskarði. Vegurinn um Öxi er lokaður.

Greiðfært er að mestu með suðausturströndinni en þó er krapi í Öræfum og hálkublettir frá Skaftafelli að Vík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert