Kanna möguleika á alþjóðaflugvelli

Rætt er um svæðið á milli Stokkseyrar og Selfoss sem …
Rætt er um svæðið á milli Stokkseyrar og Selfoss sem góða staðsetningu fyrir nýjan alþjóðaflugvöll á Suðurlandi. mbl.is/Árni Sæberg

Kanna á vel aðstæður og möguleika á byggingu alþjóðaflugvallar í sveitarfélaginu Árborg á Suðurlandi. Bæjarráð hefur samþykkt að koma á fót starfshópi sem fær þetta verkefni.

Yfir 90% þeirra ferðamanna sem koma til landsins koma á þessar slóðir en hugmyndin gengur út á að byggja alþjóðaflugvöllinn á svæðinu á milli Selfoss og Stokkseyrar.

Nokkrir einstaklingar höfðu frumkvæði að málinu og bjóðast til að leiða verkefnið. Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinnu í dag segir Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Árborgar, eðlilegt að skoða hvort hugmyndin sé raunhæf.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert