Vilja bæta öryggi í raforkumálum

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hvetur ráðherra til að beita sér fyrir bættu …
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hvetur ráðherra til að beita sér fyrir bættu öryggi í raforkumálum.

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar skorar á ráðherra að beita sér fyrir öryggi í raforkumálum á Suðurnesjum.

Í kjölfar bilunar í flutningskerfi Landsnets í óveðrinu á sunnudagskvöld vill bæjarstjórnin ítreka bókun sem gerð var á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2016. Þar var skorað á ráðherra að beita sér fyrir öryggi í raforkumálum á Suðurnesjum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bæjarstjórninni.

Ítrekun bókunarinnar var samþykkt af öllum ellefu bæjarfulltrúum Reykjanesbæjar. 

Rafmagnslaust varð í tvo klukkutíma á Suðurnesjum á sunnudagskvöld og vill bæjarstjórnin  benda á „það óöryggi sem Suðurnesjamenn búa við í raforkumálum, verandi bara með eina háspennulínu inn á svæðið.“

Bæjarstjórnin telur mikilvægt að Suðurnesjalína 2 verði reist sem fyrst. „Flutningsgeta núverandi línu er fullnýtt og hamlar núverandi kerfi uppbyggingu á svæðinu. Suðurnesjalína 1 er eina tenging Reykjanesskagans við meginflutningskerfi Landsnets og hafa bilanir á henni valdið straumleysi. Það er ekki ásættanlegt m.a. með tilliti til þess að eini alþjóðaflugvöllur landsins er staðsettur á Suðurnesjum,“ segir í tilkynningunni.

Þá telur bæjarstjórnin það vera brýnt hagsmunamál íbúa og atvinnulífs á Reykjanesi að flutningskerfi raforku verði styrkt sem fyrst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert