Hálkublettir víða á vegum

Hálkublettir, snjóþekja og éljagangur er nokkuð víða á höfuðborgarsvæðinu og á Sandskeiði. Hálkublettir og éljagangur eru einnig á Hellisheiði og í Þrengslum.

Hálkublettir eru á Reykjanesbraut en snjóþekja og éljagagnur er á Grindarvíkurvegi. Hálkublettir eða hálka er allvíða á Suðurlandi.

Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á vegum á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi. Á Norðaustur- og Austurlandi er víðast hvar hálka eða snjóþekja á vegum og sums staðar él eða skafrenningur.

Mikið er autt með suðausturströndinni en þó eru hálkublettir á köflum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert