Lögreglan leitar að Elvari Loga

Lögreglan á Suðurnesjum leitar að Elvari Loga, 8 ára.
Lögreglan á Suðurnesjum leitar að Elvari Loga, 8 ára. mbl.is/Hjörtur

Lögreglan á Suðurnesjum leitar að Elvari Loga, 8 ára.

Í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum á Facebook er óskað eftir aðstoð Suðurnesjabúa, en Elvar Logi hefur ekki skilað sér heim eftir að skóla lauk í Keflavík. Hann er búsettur í Njarðvík.

Elvar Logi er með Barcelona-skólatösku og klæddur í bláa úlpu með loðkraga eða í bláum og gulum snjógalla.  

Þeir sem búa yfir vitneskju um Elvar Loga eða ferðir hans eru beðnir um að hafa strax samband við lögreglustjórann á Suðurnesjum á Facebook eða í gegnum 1-1-2.

Uppfært klukkan 21:40: 

Elvar Logi er fundinn, heill á húfi. Lögreglan þakkar fyrir veitta aðstoð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert