Bílvelta á Grindavíkurvegi

mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Fjórir voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja með minniháttar áverka eftir að hafa velt bíl sínum á Grindavíkurvegi í nótt.

Að sögn varðstjóra í lögreglunni á Suðurnesjum er bifreiðin talsvert skemmd en mikil hálka er á Grindavíkurvegi. Þar snjóaði einnig í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert