Vara við hnerripest í hundum og köttum

Einkenni sýkingarinnar eru oftast hnerri og hósti sem gengur yfir …
Einkenni sýkingarinnar eru oftast hnerri og hósti sem gengur yfir á nokkrum dögum. Fá dýr hafa veikst alvarlega, en smitið virðist berast hratt milli dýra. AFP

Undanfarnar vikur hefur verið töluvert um væga öndunarfærasýkingu meðal hunda og katta á höfuðborgarsvæðinu og nú virðist pestin vera að stinga sér niður úti á landi. Einkenni sýkingarinnar eru oftast hnerri og hósti sem gengur yfir á nokkrum dögum. Fá dýr hafa veikst alvarlega.

Í frétt á vef Matvælastofnunnar (MAST) segir að enn sé ekki vitað um hvaða sýkingu sé að ræða, en að rannsókn á sýnum standi nú yfir á Tilraunastöð Háskóla Íslands á Keldum.

„Í lok september bárust Matvælastofnun upplýsingar um mögulegan grun um smitandi öndunarfærasýkingu í hundum og köttum á suðvesturhorni landsins. Matvælastofnun hóf strax að kanna útbreiðslu og nokkrum vikum síðar fóru að berast fleiri tilkynningar um gæludýr með slík einkenni. Virtist smit dreifast hratt milli dýra og helstu einkenni vera hnerri, mildur hósti og önnur væg einkenni frá efri öndunarvegi,“ segir í fréttinni

MAST segir aðallega hafa verið tilkynnt um sýkinguna hjá hundum, en að einnig hafi verið tilkynnt um einstaka ketti sem hafi fengið svipuð einkenni. „Fá dýr virðast verða það veik að þau missi matarlyst eða fái hita, þótt einstaka dýr sýni slík einkenni.“ 

Í gær hafi svo fyrstu fréttir borist um einkenni í hundum og köttum á Akureyri. 

„Þegar ljóst var að um bráðsmitandi sjúkdóm væri að ræða óskaði Matvælastofnun eftir sýnum úr nokkrum hundum og óskaði eftir því að Tilraunastöð Háskóla Íslands á Keldum rannsakaði þau í því skyni að kanna um hvaða smitefni væri að ræða. Niðurstaða rannsóknanna liggur ekki enn fyrir, en ef orsökin finnst mun Matvælastofnun strax tilkynna um hana.“

Er eigendum gæludýra sem sýna einkenni hnerrapestarinnar ráðlagt að forðast allt álag á dýrin og fylgjast náið með heilsu þeirra. „Ef þau þróa alvarlegri einkenni, svo sem lystarleysi, slappleika, mikinn hósta eða hita, er rétt að hafa samband við dýralækni.“ 

Vakin er þó athygli á því að til að forðast smit á milli dýra í biðstofu skuli ekki fara með dýrið á dýralæknastofu án undangengins samráðs við dýralækni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert