Flugfreyjur hjá WOW stofna sérfélag

Aðsend mynd

Flugfreyjur og -þjónar hjá WOW air hafa ákveðið að stofna nýtt stéttarfélag starfsfólks í flugiðnaði þar sem þau telja málefni sín hafa lítið vægi innan Flugfreyjufélags Íslands (FFI). 

Boðað hefur verið til stofnfundar nýs stéttarfélags fyrir flugfreyjur og flugþjóna á Íslandi 20. nóvember, samkvæmt fréttatilkynningu.

„Kjarasamningur flugliða WOW air hefur verið laus síðan í september 2016. Formlegar samningaviðræður hafa staðið yfir frá því snemma á þessu ári og voru kröfur sem komu frá flugliðum WOW air hafðar að leiðarljósi í samningaviðræðum við flugfélagið. Samninganefnd FFÍ er skipuð flugliðum WOW air sem starfa í umboði Flugfreyjufélags Íslands. Niðurstaðan er kjarasamningur sem náðst hefur við flugfélagið. Næsta eðlilega skref er að leggja samninginn í kosningu félagsmanna FFÍ sem starfa fyrir WOW air. 

Sú staða er nú komin upp að formaður FFÍ telur sig ekki geta skrifað undir samninginn fyrir hönd félagsins og sett hann í framhaldinu í kosningu hjá starfsmönnum WOW air. Þetta þýðir það að flugliðar WOW air geta ekki tekið afstöðu til samningsins og kosið um hann. Þann 27. október síðastliðinn hélt samninganefndin stöðufund með flugliðum WOW air þar sem þeir voru upplýstir um gerð samningsins og stöðu mála gagnvart FFÍ. Á fundinum kom mjög skýrt fram hjá þeim tæplega 100 manns sem mættu á fundinn að þeir hefðu áhuga á að kjósa um samninginn,“ segir í fréttatilkynningu.

„Flugliðum WOW air hefur fjölgað gríðarlega eftir inngöngu í FFÍ árið 2012 og er það ljóst að okkur mun fjölga mikið á næstu árum. Þegar metin er sú staða sem upp er komin innan FFÍ, hversu lága rödd við höfum innan þess og sú háværa krafa sem upp kom á stöðufundinum um að fá að kjósa um þennan samning þá sjáum við ekki að okkar hagsmuna sé best gætt innan FFÍ og höfum því ákveðið að stofna nýtt félag fyrir flugliða“ segir Erla Pálsdóttir hjá undirbúningsnefnd nýs stéttarfélags, Sambands íslenskra flugliða, í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert