Sennilegt að jarðhitavatnið eigi upptök vestar í Vatnajökli

Kort/Map.is

Vísindamenn frá Jarðvísindastofnun, Almannavörnum og Veðurstofunni hittust í dag og fóru yfir stöðu mála vegna jarðhitavatns í Jökulsá á Fjöllum.

Ljósmyndir sem teknar voru úr flugvél í gær sýna engin sérstök ummerki um að aukið rennsli jarðhitavatns komi úr Gengissigi í Kverkfjöllum. Á ljósmyndunum sést að töluvert vatn kemur undan Dyngjujökli í hefðbundinn farveg Jökulsár á Fjöllum vestan Kverkfjalla, að því er fram kemur í tilkynningu frá náttúruvársérfræðingi hjá Veðurstofu Íslands.

Þar segir jafnframt, að það sé því sennilegt jarðhitavatnið sem mælst hafi undanfarnar vikur eigi upptök vestar í Vatnajökli, hugsanlega í Bárðarbungu þar sem jarðhiti hafi aukist undanfarin misseri. Leiðnimælingar sýni að jarðhitavatn komi enn fram í Jökulsá en vísbendingar eru um að það fari heldur minnkandi.

Ekki er að sjá breytingar í jarðskjálftavirkni í norðanverðum Vatnajökli samhliða útrennsli jarðhitavatnsins. Frekari mælingar til að finna uppruna jarðhitavatnsins verða gerðar við fyrsta tækifæri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert