American Airlines til Íslands

American Airlines byrjar að fljúga til Íslands næsta sumar.
American Airlines byrjar að fljúga til Íslands næsta sumar. Ljósmynd/Aðsend

Bandaríska flugfélagið American Airlines ætlar að bæta Íslandi við áfangastaði sína næsta sumar.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að byrjað verði að fljúga hingað sjöunda júní frá Dallas.

„Reykjavík er orðinn mjög vinsæll áfangastaður fyrir afþreyingu og við hlökkum til að veita viðskiptavinum okkar tækifæri til að kynnast einstöku landslagi Íslands með goshverum, eldfjöllum og heitum hverum með nýrri þjónustu okkar næsta sumar,“ sagði Vasu Raja, varaforseti hjá American Airlines.

Flogið verður til og frá Dallas-Fort Worth-flugvellinum í 176 sæta Boeing 757-200-þotu.

Flogið er 760 sinnum á hverjum degi frá Dallas-Fort Worth á vegum American Airlines til yfir 200 áfangastaða í 31 landi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert