Þriggja bíla árekstur í Reykjanesbæ

Engin slys urðu á fólki í árekstrinum í morgun.
Engin slys urðu á fólki í árekstrinum í morgun.

Þriggja bíla árekstur varð í Reykjanesbæ í morgun samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Engin slys urðu á fólki en nokkurt tjón á farartækjunum.

Fram kemur hjá lögreglunni að nokkuð hafi verið um umferðaróhöpp í umdæminu á undanförnum dögum, en ekki hafi þó verið mikið um slys á fólki. Þó má nefna bílveltu á Grindavíkurvegi í gær þar sem tvennt var flutt á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi og hið þriðja á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Ökumaður þeirrar bifreiðar játaði neyslu fíkniefna og í og í kringum bifreiðina fundu lögreglumenn talsvert magn af áhöldum til fíkniefnaneyslu.

Loks varð bílvelta, einnig á Grindavíkurvegi. Fjórir voru í þeirri bifreið og héldu bílbelti bifreiðarinnar, sem var á hvolfi, þeim föstum þegar lögreglu bar að. Ökumaðurinn og farþegarnir voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert