Búið að opna fyrir umferð á Reynisfjalli

Löng bílaröð myndaðist eftir að veginum var lokað.
Löng bílaröð myndaðist eftir að veginum var lokað. Mynd/Jónas Erlendsson

Búið er að opna fyrir umferð á Reynisfjalli við Vík, en þar varð alvarlegt bílslys fyrr í dag þegar snjóruðningstæki og fólksbíll skullu saman. Tveir voru fluttir alvarlega slasaðir á sjúkrahús í Reykjavík eftir slysið. Veginum var lokað um tíma vegna þessa og mynduðust langar bílaraðir. Vegurinn hefur nú verið opnaður aftur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert