Djúp lægð austur af landinu

Djúp lægð er nokkuð langt austur af landi en hún hefur áhrif á vind á austan- og suðaustanverðu landinu samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Þar verður fyrir vikið hvassviðri eða stormur um hádegi og fram á nótt.

Veðurvefur mbl.is

Hægari vindur og víða él verða hins vegar um landið norðanvert í dag en samfelldari snjókoma norðaustanlands í kvöld. Vindáttin verður norðvestanátt, 3-10 metrar á sekúndu, um landið suðvestanvert og bjartviðri en stöku él við ströndina. Hiti verður áfram nálægt frostmarki.

Hæg breytileg átt verður síðan á morgun en norðanátt, 8-13 m/s, austast á landinu. Víða má búast við bjartviðri en dálitlum éljagangi norðanlands. 

Það lægir síðan heldur norðaustanlands á sunnudag, en áfram verður éljagangur og hvessir heldur suðvestanlands, en áfram bjartviðri.

Helgin gefur tóninn fyrir næstu viku og verða norðlægar áttir ríkjandi með éljum eða snjókomu fyrir norðan en bjartviðri syðra. Hiti verður við frostmark við sjávarsíðuna en frost hins vegar inn til landsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert