Veruleg óvissa um framhald atburðarásar

Öræfajökull.
Öræfajökull. mbl.is/Rax

Ljóst er að verulegur jarðhiti er kominn upp í öskju Öræfajökuls en ekki eru nein merki að eldgos sé að hefjast. Veruleg óvissa er þó um framhald þeirrar atburðarásar sem nú er í gangi, að því er segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands, en haldinn var stöðufundur um Öræfajökul á Veðurstofunni fyrr í kvöld.

Vísindamenn Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands og Veðurstofunnar ásamt fulltrúum almannavarna flugu yfir Öræfajökul í dag. Farið var á þyrlu Landhelgisgæslunnar og flugvél Isavia auk þess sem vísindamenn voru við árnar og söfnuðu vatni. Gerðar voru mælingar á gasi og rafleiðni vatns í ám, vatnssýnum safnað og yfirborðshæð jökulsins mæld í öskju Öræfajökuls.

Sigketilinn sem greint var frá í gær var meðal annars mældur og er hann um 1 km í þvermál og 15-20 m djúpur. Vatn úr katlinum rennur í Kvíá og á meðan svo er eru ekki taldar miklar líkur á umtalsverðu jökulhlaupi.

Í tilkynningunni segir að fylgjast þurfi náið með atburðarásinni og auka eftirlit og rannsóknir. Á Veðurstofunni er sólarhringsvakt þar sem fylgst er með jarðskjálftum og óróa.

Næstu daga þarf að vinna að fullu úr gögnum frá ferðum dagsins og verður óvissustig almannavarna áfram í gildi meðan sú vinna fer fram. Litakóði Öræfajökuls vegna flugs verður áfram gulur.

Hér sést ketillinn vel.
Hér sést ketillinn vel. Mynd/Ágúst J. Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert