Kuldaleg veðurspá næstu daga

Veðurspáin næstu daga er mjög kuldaleg, mikil hæð verður yfir Grænlandi og lægðirnar fara framhjá langt fyrir sunnan land. Við erum því föst í kaldri norðaustanátt alla vikuna með éljagangi fyrir norðan og austan, en lengst af björtu veðri sunnan heiða, að því er kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

Heldur bætir í vind og ofankomu á morgun og frá þriðjudegi má búast við hvassviðri og éljagangi eða snjókomu norðan- og austantil á landinu og því er fólki sem hyggur á ferðalög ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám. Nokkur óvissa er þó í spánum enn sem komið er

Með morgninum í dag er búist við norðan- og norðaustanátt, 5 til 13 metrum á sekúndu. Él norðantil, en bjart að mestu fyrir sunnan. Heldur hvassara á morgun og úrkomumeira, en áfram bjart sunnan til. Frost 2 til 12 stig, kaldast inn til landsins.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á mánudag:
Norðan og norðaustan 8-13 m/s og él um landið norðanvert, en heldur hægari og bjart sunnantil. Heldur hvassara um kvöldið. Frost 3 til 13 stig, kaldast í innsveitum. 

Á þriðjudag:
Norðan- og norðaustan 10-18 m/s. Él með norðurströndinni, snjókoma um landið austanvert en yfirleitt þurrt og bjart suðvestantil. Frost 2 til 12 stig, kaldast í innsveitum. 

Á miðvikudag, fimmtudag og föstudag:
Norðaustan hvassviðri og hríð, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Kalt í veðri. 

Á laugardag:
Útlit fyrir norðanátt með dálitlum éljum og kólnar.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert