Taka ábendingar um sinnuleysi alvarlega

Kallað var eftir skýringum lögreglumanna og myndefni eftirlitsmyndavéla skoðað.
Kallað var eftir skýringum lögreglumanna og myndefni eftirlitsmyndavéla skoðað. mbl.is/Hjörtur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tekur ábendingar um sinnuleysi lögreglu gagnvart ósjálfbjarga stúlku alvarlega. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem lögreglan sendi frá sér nú í kvöld.

Þar er vikið að umfjöllun sem staðið hefur í dag á frétta- og samfélagsmiðlum um facebookfærslu Hrafn­kels Ívars­sonar, dyra­varðar á skemmtistað. Gagnrýnir Hrafnkell í færslu sinni sinnuleysi lögreglu gagnvart stúlku, sem hann taldi vera ósjálfbjarga í miðborginni aðfaranótt laugardags.

„Lögregla tekur slíkar ábendingar mjög alvarlega og hefur skoðað málsatvik ítarlega, en bæði var kallað eftir skýringum lögreglumanna á vettvangi og farið yfir myndefni úr eftirlitsmyndavélum á svæðinu,“ segir í yfirlýsingunni.

„Fram kemur að lögregla hafði í tvígang tal af stúlkunni og bauð fram aðstoð sína. Stúlkan kærði sig hins vegar ekki um aðstoð lögreglu og hélt loks sína leið fótgangandi úr miðborginni ásamt vinkonu. Embættið lítur svo á að lögreglumenn á vettvangi hafi brugðist rétt við, en hafa skal hugfast að í tilvikum sem þessu er gjarnan haft áfram auga með viðkomandi, þ.e.  með aðstoð eftirlitsmyndavéla.“

Þakkar lögreglan dyraverðinum fyrir að vekja athygli á málinu og segir það sýna að fólk sé á varðbergi og standi ekki á sama. „Jafnframt harmar lögreglan að upplifun hans af samskiptum við lögreglumenn á vettvangi hafi ekki verið betri.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert