Keyrði inn í Hagkaup á Eiðistorgi

Bíllinn endaði inni í búðinni.
Bíllinn endaði inni í búðinni. Ljósmynd/Aðsend

Óhapp varð nú síðdegis þegar eldri kona missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún keyrði inn í verslun Hagkaupa á Seltjarnarnesi.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu rann konan til á bensíngjöfinni með þessum afleiðingum.

Engin slys urðu á fólki. Bíllinn var fjarlægður í kranabíl og einhverjar skemmdir urðu á búðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert