Herdís Friðriksdóttir, verkefnastjóri og eigandi ferðaskrifstofunnar Understand Iceland, fékk nýverið styrk til að kynna erlendum háskólanemum sjálfbærni og umhverfisvernd á Suðurlandi.
Ferðaskrifstofa Herdísar hefur um árabil sérhæft sig í fræðsluferðum og snýst nýja verkefnið um að fá bandaríska háskólanema til Íslands og tengja þá við einstaklinga, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Suðurlandi sem starfa í eða að sjálfbærni. „Eins og heimurinn er orðinn í dag hafa margir áhyggjur af loftslagsbreytingum og fólk er að spyrja hvað er hægt að gera til að snúa þessu við? Og það er fullt af svörum þarna úti,“ segir Herdís. Hún stefnir á að kynna nemendur fyrir grænum og endurnýjanlegum orkugjafa ásamt því að opna gagnrýnið samtal um sjálfbærni.
Herdís segir að Suðurland hafi orðið fyrir valinu vegna þess að þar eru hennar heimkynni en bendir á að þar séu einnig margir staðir sem eru áhugaverðir að heimsækja og sækja fræðslu.
„Hveragerðisbær er til dæmis að byrja með verkefni sem heitir Sjálfbært Ísland og þau eru opin fyrir samstarfi. Í Skaftholti er sjálfbært samfélag og svo er Náttúrustofan á Höfn, sem sér um mælingar á jöklunum. Svo má nefna vindmylluverkefnið hjá Landsvirkjun ásamt Hellisheiðarvirkjun. Á sama tíma þarf líka að skoða hversu mikið við ætlum að virkja, þetta er græn orka, en hversu græn er hún ef hún er notuð öll í álver?“
Herdís hefur nú þegar sett sig í samband við nokkra háskóla vestanhafs og er markmiðið að bjóða upp á fyrstu ferðina næstkomandi vor.
„Við erum aðallega að tala við skóla frá Michigan, Wisconsin, Minnesota, við tengjumst helst austurströnd Bandaríkjanna,“ segir Herdís en fræðsluferðir eru hluti af náminu í mörgum bandarískum háskólum. „Markmiðið er að skólarnir komi með hópa til okkar og við tökum við þeim. Þetta verða allt frá þriggja mánaða kúrsum niður í viku kúrsa. Erlendis heitir þetta „study abroad“ og er í raun bara fræðsluferð sem hluti af náminu þeirra.“
Í þeim fræðsluferðum sem hún hefur nú þegar farið með ferðamenn frá Bandaríkjunum hefur hún fengið gríðarlega góð viðbrögð.
„Fólk bara elskar Ísland, það er pínu vandræðalegt,“ segir Herdís og hlær við.
Herdís segir að verkefnið bjóði upp á marga möguleika en meðal annars sé hægt að bjóða háskólahópunum að taka þátt í þeim umhverfisrannsóknum sem verið er að vinna að á Suðurlandi. „Þetta yrði þá meiri samvinna á milli Understand Iceland og þeirra aðila sem vilja starfa með okkur, nemarnir læra af þeim og þeir leggja fram vinnu til rannsókna. Nemarnir og kennarar þeirra búa oft yfir þekkingu sem myndi nýtast samstarfsaðilanum einnig,“ segir Herdís.
Hún vonar einnig að þeir háskólanemar sem koma hingað nýti sér þekkinguna í heimalandi sínu, enda umhverfisvernd og loftslagsbreytingar eitthvað sem hefur áhrif á alla.