Verða að auglýsa sérstaklega að dýr séu leyfð

Þessi seppi á þess nú kost að kíkja inn á …
Þessi seppi á þess nú kost að kíkja inn á kaffihús með eigandanum á þeim stöðum sem leyfa hunda og ketti. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ekki er heimilt að koma með hunda eða ketti inn í  veitingastaði eða mötuneyti þar sem mæting er ekki valfrjáls eða á stöðum þar sem fólki er gert að sækja þjónustu. Þá gildir heimildin heldur ekki sé aðstaða veitingastaðar að einhverju leyti sameiginleg með annarri starfsemi eða á stað þar sem óheimilt er að hleypa gæludýrum inn á. 

Þetta kemur fram í frétt á vef Matvælastofnunnar um breytingu á reglugerð um hollustuhætti sem heimilar að koma með hunda og ketti á veitingastaði. Kveður reglugerðin meðal annars á um að eigendum eða rekstraraðilum veitingastaða er gert heimilt að leyfa gestum að koma með hunda og ketti inn á staðinn að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Skilyrðin fyrir því að leyfa hunda og ketti inni á veitingastöðum eru m.a. að tekið sé mið af hagsmunum gesta og velferð dýranna. Eins beri að auglýsa á áberandi hátt á húsnæðinu sjálfu, utan dyra sem innan, og á vef fyrirtækisins að heimilt sé að koma með hunda og ketti þangað inn. Upplýsingarnar verði að vera vel sýnilegar gestum áður en gengið sé inn. Þeir staðir sem ekki kjósa að nýta sér þessa heimild þurfa ekki að auglýsa það sérstaklega.

Þá þurfi rekstraraðilar að tryggja að hundar og kettir séu einungis í veitingasölum veitingastaðar og ekki þar sem matvæli eru tilreidd, meðhöndluð eða geymd. Þetta gildir t.d. um hlaðborð eða þegar framleiðsla matar er í sama rými og veitingasalurinn.

Loks beri eigendum eða rekstraraðilum veitingastaða sem vilja nýta sér þessa heimild að tilkynna það til hlutaðeigandi heilbrigðisnefndar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert