Þingmenn bregðast við áskorun þingkvenna

„Við höfum nú þegar rætt í okkar hópi hvað við …
„Við höfum nú þegar rætt í okkar hópi hvað við getum lagt af mörkum innan Alþingis og viljum halda því samtali áfram til að móta raunhæfar aðgerðir í samráði við sérfræðinga og konurnar sem við störfum með,“ segir í yfirlýsingu þingmannanna. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

13 karlar úr röðum þingmanna úr öllum flokkum hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir lýsa yfir fullum vilja til „að bregðast við áskorun 306 stjórnmálakvenna vegna kynferðisofbeldis og áreitni í stjórnmálunum sem birtist í gær undir yfirskriftinni „Í skugga valdsins“.

Meðal þeirra sem undirrita yfirlýsinguna eru tveir ráðherrar, þeir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Þorsteinn Víglundsson velferðarráðherra, sem og Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar.

„Við höfum nú þegar rætt í okkar hópi hvað við getum lagt af mörkum innan Alþingis og viljum halda því samtali áfram til að móta raunhæfar aðgerðir í samráði við sérfræðinga og konurnar sem við störfum með,“ segir í yfirlýsingunni. „Kynferðisofbeldi og áreitni á sér stað í stjórnmálum rétt eins og annars staðar í samfélaginu. Því verðum við að breyta.“

Undir yfirlýsinguna skrifa þeir:

Andrés Ingi Jónsson, Vinstri grænum

Ágúst Ólafur Ágústsson, Samfylkingu

Björn Leví Gunnarsson, Pírötum

Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálfstæðisflokki

Guðmundur Ingi Kristinsson, Flokki fólksins

Gunnar Bragi Sveinsson, Miðflokki

Helgi Hrafn Gunnarsson, Pírötum

Jón Steindór Valdimarsson, Viðreisn

Kolbeinn Óttarsson Proppé, Vinstri grænum

Logi Einarsson, Samfylkingu

Vilhjálmur Árnason, Sjálfstæðisflokki

Willum Þór Þórsson, Framsóknarflokki

Þorsteinn Víglundsson, Viðreisn

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert