54 vilja í skrifstofustjórann

Ráðhús Reykjavíkur. 54 sóttu um stöðu skrifstofustjóra menningarmála sem Menningar- …
Ráðhús Reykjavíkur. 54 sóttu um stöðu skrifstofustjóra menningarmála sem Menningar- og ferðamálasvið Reykjavíkurborgar auglýsti lausa til umsóknar í byrjun þessa mánaðar. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

54 sóttu um stöðu skrifstofustjóra menningarmála sem menningar- og ferðamálasvið Reykjavíkurborgar auglýsti lausa til umsóknar í byrjun þessa mánaðar.

Meðal þeirra sem sóttu um stöðuna eru Karl Pétur Jónsson, aðstoðarmaður Þorsteins Víglundssonar, félags- og jafnréttismálaráðherra, Sif Gunnarsdóttir, forstöðumaður Norðurlandahússins í Færeyjum, en hún stýrði Höfuðborgarstofu á árabilinu 2007-2012, Marín Guðrún Hrafnsdóttir, verkefnastjóri og fyrv. deildarstjóri menningar- og ferðamála hjá Hafnarfjarðarbæ, Lárus Vilhjálmsson leikhússtjóri og Ólöf Hulda Breiðfjörð, verkefnastjóri fræðslu- og kynningarmála Menningarhúsanna í Kópavogi.

Menningar- og ferðamálasvið fer með framkvæmd menningar- og ferðamála hjá Reykjavíkurborg, en sviðið hefur yfirumsjón með starfsemi Borgarbókasafns Reykjavíkur, Borgarsögusafns Reykjavíkur, Höfuðborgarstofu og Listasafns Reykjavíkur.

Þá hefur það einnig umsjón með málefnum Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsi, tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu, Listahátíðar í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveitar Íslands fyrir hönd Reykjavíkurborgar, auk þess að sjá um samninga, styrki og samskipti við lista- og menningarlífið og er borgaryfirvöldum til faglegrar ráðgjafar í þeim málaflokkum sem undir sviðið heyra.

Þau sem sóttu um stöðu skrifstofustjóra eru:

Aðalbjörg Katrín Arnórsdóttir, viðskiptafræðingur og ferðamálafræðingur

Agnar Jón Egilsson framkvæmdastjóri

Álfrún G. Guðrúnardóttir, kynningar- og markaðsstjóri

Ása Fanney Gestsdóttir menningarstjórnandi

Björg Jónsdóttir, verkefnastjóri MPM

Davíð Már Gunnarsson, tómstunda- og félagsmálafræðingur

Edda Harðardóttir kennari

Eldar Ástþórsson, framkvæmdastjóri viðburða og upplýsingafulltrúi CCP

Elfa Hrönn Guðmundsdóttir, MBA og ráðgjafi

Elísabet Hallbeck, löggiltur fasteignasali

Elísabet María Hafsteinsdóttir, ritstjóri og verkefnastjóri

Erla Dögg Grétarsdóttir ferðamálafræðingur

Gestur Örn Ákason viðskiptafræðingur

Guðríður S Sigurðardóttir, píanóleikari og MBA

Gunnar Ingi Gunnsteinsson skrifstofustjóri

Gunnar Kristinn Þórðarson stjórnsýslufræðingur

Hans Gústafsson, kerfisstjóri og ráðgjafi

Héðinn Sveinbjörnsson, fjármálastjóri og MBA

Ilmur Dögg Gísladóttir, kynningar- og viðburðastjóri

Íris Arnardóttir, BS. í þjóðfræði

Jóhann Sigurður Jóhannsson, stuðningsfulltrúi/mannfræðingur

Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir lögfræðingur

Jón Ingvar Bragason framkvæmdastjóri

Jóna Finnsdóttir framkvæmdastjóri

Karen María Jónsdóttir menningarstjórnandi

Karl Pétur Jónsson, aðstoðarmaður félags- og jafnréttismálaráðherra

Katrín Johnson, mannfræðingur og listdansari

Kristín Pétursdóttir skrifstofustjóri

Lárus Vilhjálmsson, leikhússtjóri

Linda Lea Bogadóttir, markaðs- og menningarfulltrúi

María Rún Hafliðadóttir forstöðumaður

Marín Guðrún Hrafnsdóttir, verkefnastjóri og fyrv. deildarstjóri menningar- og ferðamála

Marta Nordal leikstjóri

Olga María Ólafsdóttir ferðamálafræðingur

Ólafur Þorsteinn Kjartansson viðskiptastjóri

Ólöf Hulda Breiðfjörð, verkefnastjóri fræðslu- og kynningarmála Menningarhúsanna í Kópavogi

Patricia Anna Þormar verkefnastjóri

Pétur Arnar Kristinsson hönnuður

Ragnheiður S. Kjartansdóttir verkefnastjóri

Salome Friðgeirsdóttir verkefnastjóri

Sif Gunnarsdóttir forstöðumaður

Sif Sigfúsdóttir, ráðgjafi og M.Sc. í mannauðsstjórnun

Sigfríður Björnsdóttir deildarstjóri

Sigmann Þórðarson myndlistarmaður

Sigrún Sigurðardóttir deildarstjóri

Sigurður Ásgeir Árnason framkvæmdastjóri

Sigurður Kaiser, sviðshönnuður og meistaranemi við Háskóla Íslands

Skúlína Hlíf Kjartansdóttir, aðjunkt við Háskóla Íslands

Sóley Eiríksdóttir verkefnastjóri

Sólrún Sumarliðadóttir, tónlistarkona og MA í menningarstefnu og -stjórnun

Valgerður Árnadóttir framkvæmdastjóri

Vigfús Ingvarsson, nemi í viðburðastjórnun við Háskólann á Hólum

Þórmundur Jónatansson ráðgjafi

Þórunn Edda Magnúsdóttir tónleikahaldari

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert