Búið er að opna veginn um Skeiðarársand, en enn er þó óveður á svæðinu. Fyrr í morgun var opnað fyrir umferð undir Eyjafjöllum og eins frá Freysnesi að Höfn, en hætta er á að það loki aftur undir Eyjafjöllum í dag að því er segir á vef Vegagerðarinnar. Lokað er frá Djúpavogi að Þvottá.
Veður fer heldur skánandi nú um hádegi undir Eyjafjöllum og í Mýrdal, en áfram verður þó hvasst á þeim slóðum. Búast má við mjög snörpum, en staðbundnum strengjum í allan dag frá Lómagnúpi og austur um á sunnanverða Austfirði
Eins eru Mývatns og Möðrudalsöræfi lokuð, en búast má við að þar opnist upp úr hádegi. Þar er þó hætta er á að þau lokist fljótt aftur.
Þá eru líkur á að Holtavörðuheiði lokist um miðjan dag sem og leiðin yfir Vatnsskarð og Þverárfjall, en útlit fyrir að um hádegi bæti í snjókomuna og eins lítið eitt í vind. Mjög blint verður um tíma eftir miðjan daginn og fram á kvöld. Þá má búast við að Siglufjarðarvegur lokist einnig er líður á daginn. Einnig má búast við erfiðri færð og akstursskilyrðum í Húnavatnssýslum og í kringum Blönduós.
Óvíst er hvort hægt verði að opna langleiðir á Norður- og Austurlandi fyrr en á laugardag, en líklega fyrr á Vestfjörðum.