Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað til um fimmleytið í morgun vegna bíls sem hafði lent á staur við Hringbrautina. Hafði ökumaðurinn fengið aðsvif við aksturinn.
Var hann fluttur á slysadeild Landspítalans til skoðunar, en ekki var talið að meiðsl hans væru alvarleg.
Bíllinn var fluttur á brott með dráttarbíl.