Loka Fóðurblöndunni á Egilsstöðum

Egilsstaðir.
Egilsstaðir. mbl.is/Golli

Verslun Fóðurblöndunnar á Egilsstöðum verður lokað um mánaðamótin. Ákvörðunin var tekin í kjölfar nokkurra ára tapreksturs. 

Austurfrétt greinir frá þessu en þar er haft eftir Eyjólfi Sigurðssyni framkvæmdastjóra að þær leiðir sem farnar hafa verið til að freista þess að auka veltuna hafi ekki skilað árangri.

Verslunin hefur verið rekin í tíu ár. Þar hafa tveir starfsmenn unnið að undanförnu. Vörur Fóðurblöndunnar verða til sölu í verslun Jötunn véla á Egilsstöðum, líkt og verið hefur.

Aðrar verslanir Fóðurblöndunnar eru í Reykjavík, á Selfossi, Hvolsvelli og Hellu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert