„Ísland er heimsmeistari í jafnrétti“

Silvana Koch-Mehrin, forseti alþjóðasam­tak­anna WPL Women Political Lea­ders, á heimsþingi …
Silvana Koch-Mehrin, forseti alþjóðasam­tak­anna WPL Women Political Lea­ders, á heimsþingi samtakanna í Hörpu í dag. mbl.is/Eggert

Heimsþing alþjóðasam­tak­anna WPL, Women Political Lea­ders Global For­um, var formlega sett í Hörpu í morgun. Þingið er það fjölmennasta frá upphafi en það sækja um 400 stjórnmálakonur frá um 100 löndum og ber það yfirskriftina „We Can Do It!“

„Staðurinn og stundin á þessu þingi er viðeigandi sem aldrei fyrr þar sem Ísland er heimsmeistari í jafnrétti,“ sagði Silvana Koch-Merhin, forseti WPL, við setningu þingsins. Auk Koch-Merhin fluttu Steingrímur J. Sigfússon forseti Alþingis og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ávarp við opnunina.

Koch-Mehrin segir að hægt sé að auka jafnrétti og hlut kvenna stjórnmálum bæði með því að fjölga konum í stjórnmálum og með því að auka áhrif þeirra. Tekur hún undir orð Vigdísar Finnbogadóttur um að kvenréttindi séu mannréttindi og því sé það mikilvægt mannréttindamál að loka kynjabilinu. Hvatti hún þinggesti til að læra af dvöl sinni á Íslandi og taka hluta af því með sér heim. „Þegar ein kona er leiðtogi breytir það henni, en þegar margar konur eru leiðtogar breytast stjórnmálin og stefnurnar,“ sagði Koch-Mehrin.

Guðlaugur Þór Þórðarson, Silvana Koch-Mehrin og Steingrímur J. Sigfússon.
Guðlaugur Þór Þórðarson, Silvana Koch-Mehrin og Steingrímur J. Sigfússon. mbl.is/Eggert

Þingið er haldið í sam­starfi við Alþingi og rík­is­stjórn Íslands, en Vig­dís Finn­boga­dótt­ir fyrr­ver­andi for­seti Íslands er sér­stak­ur vernd­ari heimsþings­ins en henni verða veitt sér­stök heiður­sverðlaun á þing­inu. All­ar kon­ur sem sitja á þjóðþing­um alls staðar um heim­inn eiga aðild að samtökunum en Hanna Birna Kristjánsdóttir er stjórnarformaður samtakanna.

Í ávarpi sínu stiklaði Steingrímur J. Sigfússon á stóru um þátttöku kvenna í stjórnmálum á Íslandi og benti þinggestum á að flest benti til þess að næsti forsætisráðherra Íslands yrði kona. Vísaði hann þar til Katrínar Jakobsdóttur sem að öllum líkindum tekur við embætti forsætisráðherra í þessari viku.

Heimsþing alþjóðasam­tak­anna WPL Women Political Lea­ders, Global For­um í Hörpu.
Heimsþing alþjóðasam­tak­anna WPL Women Political Lea­ders, Global For­um í Hörpu. mbl.is/Eggert

„Ég get ekki sleppt því að nefna hreyfinguna sem farið hefur af stað undanfarnar vikur undir myllumerkinu #metoo,“ sagði Guðlaugur Þór í ávarpi sínu. Hann sagði mikilvægt að konur standi ekki einar í baráttunni gegn ójafnrétti kynjanna, karlar yrðu að taka þátt enda njóti allir góðs af auknu jafnrétti.

„Þegar ég tala um kvenréttindi á alþjóðavettvangi bendi ég á hvernig við karlarnir græðum á því að kvenréttindi séu í hávegum höfð,“ sagði Guðlaugur Þór. Mörgum konum sé hægt að þakka fyrir hversu langt við höfum náð en þar sé Vigdís Finnbogadóttir fremst meðal jafningja.

Ræðumenn voru sammála um að margt hafi áunnist á undanförnum áratugum í átt að auknu jafnrétti kynjanna, ennþá sé þó nokkuð langt í land, líka á Íslandi.

Steingrímur J. Sigfússon á heimsþingi alþjóðasam­tak­anna WPL Women Political Lea­ders, …
Steingrímur J. Sigfússon á heimsþingi alþjóðasam­tak­anna WPL Women Political Lea­ders, Global For­um í Hörpu. mbl.is/Eggert
Guðlaugur Þór Þórðarson á heimsþinginu í Hörpu.
Guðlaugur Þór Þórðarson á heimsþinginu í Hörpu. mbl.is/Eggert
Hanna Birna Kristjánsdóttir er stjórnarformaður samtakanna.
Hanna Birna Kristjánsdóttir er stjórnarformaður samtakanna. mbl.is/Eggert
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert