Skammast sín fyrir að hafa ekki gert meira

Birgitta Jónsdóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata, segist alltaf hafa verið mótfallin …
Birgitta Jónsdóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata, segist alltaf hafa verið mótfallin því að mótmælt væri fyrir utan heimili fólks. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Birgitta Jónsdóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata, segist skammast sín fyrir að hafa ekki gert meira á sínum tíma til að standa með Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, fyrrverandi þingmanni Samfylkingarinnar.

Steinunn Valdís rifjaði upp í þættinum Silfrinu á RÚV í gær of­beldi sem hún varð fyr­ir fyr­ir tæpum átta árum er hópur fólks stóð fyrir mótmælum utan við heimili hennar. Er hún fjallaði um málið á facebooksíðu sinni árið 2013 sagði hún Birgittu hafa hvatt fólk til að fara að heim­ili sínu og krefjast af­sagn­ar. Sagðist Steinnunn Valdís hafa spurt þing­flokk Hreyf­ing­ar­inn­ar út í málið og fengið svarið: „Segðu bara af þér.“

„For­stjóri Matís, Sveinn Mar­geirs­son, og bræður hans hlaupagarp­ar voru fyr­ir fram­an glugg­ana hjá mér í þrjár vik­ur. Þar var einnig Björn Þorri Vikt­ors­son lögmaður kvöld eft­ir kvöld vel klædd­ur í kraft­galla með marga af sín­um skjól­stæðing­um. Til viðbót­ar voru marg­ir skjól­stæðing­ar Útvarps Sögu o.fl.,“ sagði Stein­unn Val­dís í færslu um málið á Facebook á sínum tíma.

Birgitta tekur málið upp á facebooksíðu sinni í dag. „Ég vil halda því til haga að ég hef ALLTAF verið því mótfallin að fólk mótmæli fyrir utan heimili fólks. Ég lét þá sem stóðu fyrir því heyra það á sínum tíma. Það er ekkert sem réttlætir slíka aðför að friðhelgi fólks, alveg sama hvar í flokki það stendur. Á Íslandi er aðgengi að stjórnmálafólki með því besta sem gerist í heiminum vegna hefða og fámennis,“ segir Birgitta í færslu sinni.

Sjálf hafi hún lent í því að fá yfir mig morðhótanir reglulega og verið talin réttdræp. „Á mig var t.d. ráðist í matvöruverslun á þann veg að eldri kona klessti á mig hressilega og viljandi með innkaupakerru sinni og hrópaði að mér níð í viðurvist yngri sonar míns, en það er í engu sambærilegt við það sem Steinunn Valdís varð fyrir og er sú aðför að henni smánarblettur á stjórnmálasögu okkar.

Ég eins og fleiri skammast mín fyrir að hafa ekki gert meira til að standa með henni á sínum tíma og bið hana afsökunar á því,“ segir Birgitta.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert