Sjókvíaeldi tvöfaldast í Dýrafirði

Stór og fallegur lax á land.
Stór og fallegur lax á land. mbl.is/Helgi Bjarnason

Arctic Sea Farm, dótturfélag Arctic Fish, fær einhvern næstu daga afhent rekstrar- og starfsleyfi fyrir framleiðslu á allt að 4000 tonnum á laxi í sjókvíum í Dýrafirði.

Það þýðir að félagið getur tvöfaldað framleiðslu sína, upp í 4.200 tonn, á næstu árum. Arctic Sea Farm vinnur að frekari stækkun, bæði í Dýrafirði og fleiri fjörðum Vestfjarða, að því er fram kemur í umfjöllun um stækkunina í Morgunblaðinu í dag.

Arctic Sea Farm er með leyfi til að framleiða 2.000 tonn af laxi eða regnbogasilungi í Dýrafirði auk annars leyfis upp á 200 tonn. Félagið einbeitti sér lengi að eldi á regnbogasilungi en er að færa sig yfir í laxeldi. Frá því að núverandi leyfi fékkst, fyrir um sex árum, hefur Arctic Sea Farm unnið að stækkun í 4.000 tonna ársframleiðslu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert