Ófaglærðir reisa húsin

Framkvæmdir í miðborginni.
Framkvæmdir í miðborginni. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Við höfum orðið varir við að allir sem eru að vinna við háhýsi hér í bæ eru skráðir sem verkamenn,“ segir Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar, sambands iðnfélaga, í samtali við Morgunblaðið.

Stéttarfélög iðnaðarmanna hafa fengið mörg dæmi í vinnustaðaheimsóknum um stór húsbyggingarverk þar sem ekki finnst einn einasti fagmenntaður iðnaðarmaður við störf og vandasömum verkefnum hefur verið úthlutað til ófaglærðra. Þetta er óhæfa, segir Hilmar í umfjöllun um mál þessi í Morgunblaðinu í dag.

Í flestum tilvikum er um að ræða erlenda verkamenn sem vinna störf iðnaðarmanna s.s. málun, múrverk, pípulagnir o.s.frv.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert