Óska eftir vitnum að líkamsárás

mbl.is/Hjörtur

Lögreglan á Suðurnesjum óskar eftir vitnum að líkamsárás á ökumann strætisvagns í Reykjanesbæ klukkan 17:25 í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu. Vitni hafi verið að atburðinum og einhverjir tekið árásina upp á snjallsíma.

Þeir sem hafa upplýsingar um málið eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum annaðhvort í gegnum Messenger eða í síma 444-2200.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert