Hafa yfirheyrt annað fórnarlambið

Mennirnir voru stungnir á Austurvelli.
Mennirnir voru stungnir á Austurvelli. mbl.is/Eggert

Maðurinn sem særðist alvarlega þegar hann var stunginn á Austurvelli aðfaranótt sunnudags liggur enn þungt haldinn og í lífshættu á sjúkrahúsi. Lögregla hefur yfirheyrt annan mann sem einnig var stunginn.

Íslenskur karlmaður stakk tvo albanska karlmenn en þeir voru báðir á þrítugsaldri. Eins og áður sagði særðist annar maðurinn alvarlega en hinn hlaut tölu­verða áverka en þeir voru ekki lífs­hættu­leg­ir.

Maðurinn sem er grunaður um verknaðinn situr í gæsluvarðhaldi til 15. desember.

Frétt mbl.is: Annar mannanna enn í lífshættu

Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn segir að lögregla vilji ekki gefa út hvað komið hefur fram í yfirheyrslum yfir hinum grunaða.

Annar mannanna sem var stunginn var yfirheyrður í gær og Grímur segir að framburður hans sé ágætur, án þess að vilja fara út í smáatriði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert